Helga Dögg Sverrisdóttir
Glerárgilið er djúpt og fallegt gil á Akureyri. Það er mikill gróður meðfram ánni sem rennur um gilið. Meðfram neðri Glerá eru göngustígar.
5Frá Akureyri er hægt að sigla út á fjörðinn til að skoða hvali og veiða. Á bátnum Húna fá nemendur að veiða fisk á stöng.
7Hlíðarfjall er skíðasvæði Akureyrar. Á veturna stunda margir skíði. Hlíðarfjall laðar að sér fólk en þar er góð aðstaða fyrir gesti.
11Kjarnaskógur er útivistarparadís fyrir bæjarbúa og gesti. Skógræktarfélagið beitti sér fyrir gróðursetningu og friðun svæðisins.
13Í Kjarnaskógi má finna mörg leiksvæði og aðstöðu til að grilla. Skólar fara oft með nemendur í haust- og vorferðir í skóginn.
15Krossanesborgir er fallegur staður. Góðar gönguleiðir eru á svæðinu og hægt að njóta náttúrunnar. Á myndinni sést yfir Hundatjörnina.
17Margar fuglategundir lifa í Krossanesborgum. Í fuglahúsinu getur maður fylgst með fuglum á Hundatjörninni.
19Lystigarðurinn opnaði 1912. Hann er opinn frá 1. júní til 30. september. Allir geta komið og skoðað gróður í garðinum.
21Í Lystigarðinum eru fjölmargar tegundir sem þola íslenskt veðurfar. Menn hafa lagt sig fram um að finna þær tegundir og setja í garðinn.
23Sundlaug bæjarins er mikið notuð af íbúum og gestum. Árið 2017 kom ný rennibraut við sundlaugina sem er ein sú stærsta á landinu. Jarðvarminn er nýttur.
25Foto/ Myndir/ Asseq/ Valokuva/ Guvvieh/ Nuotraukos/ Photo:
S1: Bob T - commons.wikimedia.org
S4+14+16:Helga Dögg Sverrisdóttir
S6+10+12+18+20+24+26: Sigurður Arnarson
S8: Kaffið/Ingólfur Stefánsson