
Tillbaka till sökning
Helga Dögg Sverrisdóttir
Merki bæjarfélagsins táknar þrjú fjöll sem minnir á uppruna þess. Helstu atvinnuvegir er sjávarútvegur og landbúnaður.
2. júní 1934 kom mikill jarðskjálfti í Eyjafirði en Dalvíkingar fundu mest fyrir honum. Síðan þá er hann kallaður Dalvíkurskjálftinn.
Dalvíkurkirkja var vígð 1960 en áður höfðu Dalvíkingar kirkjusókn í Upsasókn sem er rétt hjá.
Í dag er Dalvík aðallega þekkt fyrir hátíðina ,,Fiskidagurinn mikli.” Þetta er fjölskylduhátíð þar sem allt er ókeypis. Margir ferðamenn koma á hátíðina því er hún mjög sérstök.
Bæjarbúar bjóða gestum fiskisúpu, á föstudagskvöldinu, sem fara í biðraðir eftir súpu og fara á nokkra staði til að smakka.
Á laugardeginum er hátíðin ,,Fiskidagurinn mikli” og þá kemur fólk saman og borðar fisk. Fiskborgari er vinsæll meðal gestana.
Um kvöldið eru haldnir tóneikar og að þeim loknum sér Björgunarsveitin á Dalvík um flugeldasýningu.
Dalvík er þekkt fyrir að hæsti maður Íslands fæddist hér. Jóhann Kristinn Pétursson var alltaf kallaður Jóhann Svarfdælingur. Hann dó 1984 í heimabæ sínum.
Vinabæir Dalvíkur eru; Viborg í Danmörku, Lund í Svíþjóð, Hamar í Noregi, Porvoo í Finnlandi og Ittoqqortoormit (Scoresbysund) á Grænlandi.