Helga Dögg Sverrisdóttir
Vatnajökulsgarður var stofnaður 2008 og hann er 14.701 km². Hann er meðal stærstu þjóðgarða í Evrópu. Hann komst á heimsminjaskrá UNESCO 2019.
Garðurinn þekur 14% af Íslandi. Hann nær yfir Vatnajökull og þjóðgarðarnir í Skaftafelli og Jökulsárgljúfur falla inn í hann. Auk þess eru þrír fossar í garðinu, m.a. Dettifoss sem er 45 m hár og 100 m breiður.
7Þjóðgarður er friðlýst svæði sem teljast sérstæð vegna náttúrunnar eða sögu. Þess vegna komst hann inn á heimsminjaskrá UNESCO.
9Sérstaða Vatnajökulsþjóðgarð er samspil eldvirkni, jarðhita, jökla og vatnsfalla sem sköpuðu einstakt landslag.
11Vatnajökull er stærsti jökull Evrópu. Hann er 7.800 km² og ísinn víðast 400–600 m þykkur en mest um 950 m.
13Í kringum jökulinn er háslétta og upp úr henni rísa stök fjöll eins og Herðubreið drottning íslenskra fjalla.
15Bæði nyrst og syðst eru flóðsléttur. Í norður og vestur eru Móbergshryggir áberandi með gljúfur þar sem vatn er á botninum. Í suðaustur og norðaustur er heiðlendi. Við jaðra jökulsins er landslandið fjölbreytt með minjar um jökulinn.
17Fjölbreyttar gönguleiðir eru í boði um allan Vatnajökulsþjóðgarð, m.a. í Holuhrauni. Gönguleiðirnar eru merktar samkvæmt erfiðleikastuðli og ættu allir að geta fundið gönguleið við sitt hæfi.
19Foto/ Myndir/ Asseq/ Valokuva/ Govvá/ Guvvieh/ Nuotraukos/ Fotod/ Photo:
S1+6+8+10+12+16+18+20: wallpaperflare.com
S4: vatnajokulsthjodgardur.is
S14: Yashima - flickr.com
www.vatnajokulsthjodgardur.is