Helga Dögg Sverrisdóttir
Gásir er verslunarstaður frá miðöldum. Gásir eru tilnefndar á heimsminjaskrá UNESCO. Staðurinn er 11 km norður af Akureyri, við ströndina í Eyjafriði á norðanverðu Íslandi.
5Nokkrum sinnum hefur fornleifauppgröftur verið á Gásum. Hvergi á Íslandi eru varðveittar jafn miklar mannvistarleifar frá miðöldum.
7Staðurinn er oft nefndur í handritum frá 13. og 14. öld. Komið var sjóleiðis að Gásum. Talið er að siglt hafi verið fram eftir 15. öld að staðnum.
9Þriðju helgina í júlí eru Miðaldadagar haldnir á Gásum. Þá kemur fólk saman og lifir eins og gert var á miðöldum.
11Á Miðaldardögum getur maður séð hvernig handverk var unnið og matur búinn til. Fólk sýnir hvernig lífið var á miðöldum og hvernig verslunarstaðurinn var.
13Á Miðaldardögum er sett upp leikrit til að sýna almenningi hvernig menn börðust um varning sem barst að Gásum.
15Skreið er þurrkaður fiskur, oftast þorskur. Þurrkun er gömul aðferð, til að auka geymsluþol fisks, sem einkum er notuð á Íslandi. Á miðöldum var mikið borðað af honum.
17Allir hjálpuðust að við vinnu og þegar handverk var búið til. Börn og fullorðnir höfðu hlutverk.
19Fýsibelgur var notaður til að halda glóðinni heitri þannig að hægt væri að hamra járnið meðan það er heitt.
25Foto/ Myndir/ Asseq/ Valokuva/ Guvvieh/ Nuotraukos/ Photo:
S1+10+14+26: Minjasafnid.is
S4: Joaoleitao - commons.wikimedia.org
S6: Akureyri.is
S8+16+18+20+22+24: Helga Dögg Sverrisdóttir
minjasafnid.is/is/gasir