
Aftur í leit
Helga Dögg Sverrisdóttir
Skálholt var bær, kirkjustaður og biskupsetur frá 1056 -1796 og má segja höfuðstaður landsins. Skálholt er í Árnessýslu á Suðurlandi.
Altaristaflan er máluð af Nínu Tryggvadóttur listmálara sem notaði ríkjandi liti náttúrunnar við túlkun Frelsarans.
Gerður Helgadóttir glerlistakona gerði steindu gluggana í kirkjunni og er ímynd hjálpræðissögunnar.
Í kjallara kirkjunnar er steinkista Páls biskups (1155-1211) en hún er 730 kg með loki. Bein hans fundust í kistunni.
Á vegg í kirkjunni má sjá töflur þar sem allra biskupa er getið sem hafa þjónað í Skálholti. Á myndinni má sjá nöfnin frá 1056-1420.
Í kirkjugarðinum, í kringum Skálholt, eru þúsundir manna jarðaðir. Þessi móbergssteinn fannst í grunni kirkjunnar. Hann er frá miðöldum.
Í kirkjunni eru oft haldnir tónleikar og fjöldi fólks kemur víða að til að hlusta. Yfir sumarið er haldin röð tónleika og þá eru bæði íslendingar og útlendingar sem taka þátt.