Helga Dögg Sverrisdóttir
Bergrún er íslenskur barnabókahöfundur og teiknari. Hún hefur skrifað bækur frá árinu 2014. Hún lauk prófi í listfræði frá Háskóla Íslands og síðar námi í teikningu frá Myndlistarskólanum.
5Bergrún er fædd árið 1985 og býr í Hafnarfirði með fjölskyldu sinni. Hún á tvö börn. Hún er með vinnustofu í Hafnarfirði ásamt öðrum listamönnum.
7Hægt er að finna margar barnabækur sem hún hefur myndskreytt því hún er líka teiknari. Hér getur þú séð söguna Amma óþekka sem hún teiknaði myndir við.
11Bergrún myndskreytir eigin bækur og fyrir aðra höfunda líka. Hún hefur líka teiknað myndir í kennslubækur.
13Margar af bókum hennar hafa verið tilnefndar til fjölda verðlauna og hún hefur fengið verðlaun fyrir nokkrar þeirra.
15Fyrsta bókin sem hún skrifaði, Vinur minn- vindurinn kom út 2014. Hún fékk verðlaun Í flokki Barna- og unglingabókmennta Norðurlandaráðs fyrir bókina.
17Árið 2019 fékk hún Íslensku bókmenntaverðlaunin en þrjár bækur er verðlaunaðar. Hún fékk verðlaunin fyrir bókina sína Lang-elstur að eilífu.
19Árið 2020 var Bergrún útnefnd sem listamaður Hafnarfjarðar. Hún fékk peningaupphæð sem bæjarlistamaður til að halda áfram að vinna að list sinni.
21Í lok bókarinnar Kennarinn sem hvarf segir Bergrún frá sér. Hún las mikið sem barn og stundum inni í skáp þar sem voru púðar. Hún hafði vasaljós með og kex ef hún yrði svöng. Þegar hún var lítil var ekkert internet.
23Í bókunum um kennarann segir Bergrún frá nemendum, einum í einu. Þeir endurspegla venjulegan bekk. Í bókinni Kennarinn sem hvarf sporlaust er stúlka frá Albaníu sem flutti til Íslands vegna veikinda bróður síns.
25Í bókinni Kennarinn sem kveikti í er sagt frá Fannari sem er einhverfur. Hann er alltaf vel til fara og notar bindi sem er ekki venjulegt fyrir börn á þessum aldri. Fannar býr hjá ömmu sinni og afa.
27Foto/ Myndir/ Asseq/ Valokuva/ Govvá/ Guvvieh/ Nuotraukos/ Fotod/ Photo:
S1-8+12+14+18-28: Bergrún Íris Sævarsdóttir
S10+16: Forlagid.is
S28: Praha město literatury - youtube.com
www.facebook.com/vinurminnvindurinn