![](https://atlantbib.org/sites/default/files/logo_0.png)
Tilbage til søgning
Av Frösakullsskolan Åk 1/ MR + LB
Oversat til íslensku af Amelia, Ísar, Joseph og Valdís - BreiðholtsskóliÞað blæs og rignir meira á haustin. Maður þarf að fara í þykkari föt þá.
Margir fuglar flytja til heitari landa. Sumir fuglar fljúga alla leið til Afríku.
Það finnast fuglar, sem ekki flytja frá Svíþjóð. Þeir kallast staðfuglar.
Á haustin verða laufblöðin fyrst rauð og gul. Seinna falla þau niður á jörðina.
Á haustin tínum við sveppi. Kóngssveppur og Kantarella eru góðir til að borða. Reifasveppir eru mjög eitraðir.
Á haustin tínum við sveppi. Kóngssveppur og Kantarella eru góðir til að borða. Reifasveppir eru mjög eitraðir.
Í Svíþjóð höfum við elgveiðar. Veiðin byrjar aðra vikuna í október.
Á haustin sjá dýrin um að þau eigi mat í forðabúrinu sínu. Það kallast að hamstra.
Broddgölturinn er friðaður í Svíþjóð. Hann fer í dvala og felur sig í bunka af laufblöðum. Þeir borða snigla, skordýr, ánamaðka og aðra orma.
Broddgölturinn er friðaður í Svíþjóð. Hann fer í dvala og felur sig í bunka af laufblöðum. Þeir borða snigla, skordýr, ánamaðka og aðra orma.