Helga Dögg Sverrisdóttir
Ísland hefur haft sex forseta frá stofnun lýðveldisins, 17. júní 1944. Þar af eina konu. Forsetaembættið hefur sinn eigin fána með skjaldarmerki landsins.
5Forseti er þjóðkjörinn og situr í fjögur ár. Sitjandi forseti er Guðni Th. Jóhannesson hann var kosinn 2016. Guðni gefur kost á sér til endurkjörs í júní 2020.
7Frambjóðandi til embættisins skal hafa lágmark 1500-3000 meðmælendur, hafa kjörgengi og vera 35 ára eða eldri. Lögin eru frá 1945 en þá bjuggu um 126.000 manns á landinu. Á Íslandi búa um 360.000 manns.
9Flest störf forsetans eru táknræn en oft er sagt að embættið sé sameiningartákn þjóðarinnar. Forsetinn býr á Bessastöðum með fjölskyldu sína.
11Guðni Th. Jóhannesson er fæddur 26. júní 1968. Hann er sagnfræðingur að mennt. Hann er giftur Elizu Rein og eiga þau fjögur börn. Guðni á dóttur frá fyrra hjónabandi.
13Eliza Rein er frá Kanada. Hún er fædd 5. maí 1976. Þau kynntust í námi í Oxford háskólanum á Englandi. Þau hafa búið á Íslandi frá 2003.
15Börn þeirra eru Duncan Tindur (f. 2007), Donald Gunnar (f. 2009), Sæþór Peter (f. 2011) og Edda Margrét (f. 2013) og dóttir Guðna heitir Rut (f.1994).
17Fyrir hönd Íslands mætir Guðni víða, bæði innan- og utanlands. Hann þykir alþýðlegur maður og góður gestgjafi.
19Forsetinn tekur oft á móti mörgum hópum á heimili sitt og félagasamtökum. Hann bauð fólki með Alzheimer sjúkdóminn til Bessastaða og ræddi við þau.
21Guðni og Eliza taka þátt í plokkdeginum sem er í lok apríl. Þau láta sitt ekki eftir liggja að hreinsa rusl af jörðinni. Hér eru þau fyrir utan Borgarspítalann á Kórónutímum, 2020, til að hreinsa rusl til heiðurs heilbrigðisstarfsfólki.
23Forseta Íslands finnst mikilvægt að tala við og til ungu kynslóðarinnar og notar hvert tækifæri til þess.
25Guðni var sæmdur riddaratign af öðrum Norðurlandsþjóðum. Hann var sæmdur riddaratign fílareglunnar í Danmörku. Hann fékk stórriddarakross í Noregi og riddaratign sænsku Kungl. Maj:ts Orden.
27Foto/ Myndir/ Asseq/ Valokuva/ Govvá/ Guvvieh/ Nuotraukos/ Fotod/ Photo:
S1+6+12+14+16+18+20+26: ⓒForseti.is
S4: Kjallakr - commons.wikimedia.org
S8+14: ⓒGudnith.is
S10: Klaus Nahr - flickr.com
S16:ⓒ @gudnith2020 - facebook.com
S22+24+28: ⓒ@embaettiforseta - facebook.com