Helga Dögg Sverrisdóttir
Slysavarnafélagið Landsbjörg er landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi.
5Björgunarsveitir starfa á öllu landinu en það fer eftir fjölda íbúa í sveitarfélaginu hve fjölmenn sveitin er. Í þessari bók verður sagt frá störfum þeirra.
7Félagið var stofnað 2. október 1999, en þá urðu til ein stærstu samtök sjálfboðaliða á Íslandi með um 18 þúsund félaga.
9Meiði fólk sig til fjalla koma björgunarsveitirnar í samvinnu við lögreglu og sjúkralið. Ekki er hægt að bera alla niður og þá er þyrla kölluð til.
11Björgunarsveitir hafa byggt upp kunnáttu og þekkingu til að takast á við óhöpp sem verða á Íslandi og lögregla eða sjúkralið ræður ekki við.
13Fagmennska einkennir starf þeirra sem hefur vakið eftirtekt víða um heim. Öflugur tækjakostur tryggir meðal annars fagleg vinnubrögð á vettvangi.
15Sveitirnar starfa á hálendinu yfir sumarið og aðstoða við allt mögulegt. Það eru bæði Íslendingar og ferðamenn sem fá aðstoð. Allt ókeypis.
19Meðlimir sveitanna vinna oft við erfið skilyrði þegar veður eru válynd sem dæmi. Þegar eldgos verður, flóð eða mikil snjókoma. Dýrum er líka bjargað.
21Á haustin kemur stundum stormur og þá fjúka ýmsir hlutir. Trampólín takast á loft og þök rifna af húsum.
27Í vondum veðrum kemst fólk sem vinnur á sjúkrahúsum og elliheimilum ekki í vinnuna. Þá koma björgunarsveitirnar á stórum bílum og keyrir starfsfólkið í vinnuna.
29Hundabjörgunarsveitir er ein deild innan björgunarsveita. Hundar eru þjálfaðir til leita að týndu fólki.
31Til að nýliðun eigi sér stað í sveitunum starfrækja þeir unglingastarf. Þau eru þjálfuð á ýmsan hátt.
33Foto/ Myndir/ Asseq/ Valokuva/ Guvvieh/ Nuotraukos/ Photo:
S1+4+6+10+12+14+18+22+30+32+36: Björgunarsveitin Kjölur
S8: Slysavarnadeild.is
S16+24+26: Björgunarsveitin Kyndill
S20+28+34: Björgunarsveitin Dagrenning, Hvolsvelli - kjolur.123.is