Helga Dögg Sverrisdóttir
Hallgrímskirkja er stærsta kirkja landsins. Guðjón Samúelsson teiknaði kirkjuna sem var hans síðasta verk. Hann notaði íslenskt efni og fyrirmynd þegar hann teiknaði kirkjuna.
5Hallgrímskirkja er til minningar um Hallgrím Pétursson sálmaskáld Íslendinga. Kirkjan var 34 ár í byggingu og var tilbúin 1974.
7Alþingi Íslendinga hlutaðist til um byggingu kirkjunnar. Kirkjan þjónar um 7000 manns og er með mjög virkt safnaðarstarf.
9Margir ferðamenn heimsækja kirkjuna á hverjum degi. Turn kirkjunnar er 73 metra hár og úr honum er stórkostlegt útsýni yfir Reykjavík.
11Orgeltónleikar eru haldnir reglulega í kirkjunni. Margir útlenskir listamenn taka þátt í tónleikum í kirkjunni.
13Messað er í kirkjunni á hverjum sunnudegi. Síðasta sunnudag hvers mánaðar er messað á ensku.
15Um áramót safnast bæði Íslendingar og ferðamenn við kirkjuna til að fylgjast með þegar flugeldum er skotið upp.
17Fyrir utan kirkjuna er stytta af Leifi heppna, sem horfir til vesturs. Samkvæmt sögunni er hann fæddur á Íslandi um 980 sonur Eiríks rauða og Þjóhildar.
19Talið er að Leifur heppni hafi verið fyrsti Evrópubúinn sem nam land við Norður-Ameríku- fyrr en Kólumbus. Það var Vínland á Nýfundnalandi í Kanada.
21Foto/ Myndir/ Asseq/ Valokuva/ Guvvieh/ Nuotraukos/ Photo:
S1: Andreas Tille - commons.wikimedia.org
S4: William Warby - commons.wikimedia.org
S6: Hallgrímur Pétursson (1614-1674)
S8: Falco - pixabay.com
S10: Marcel Prueske - pixabay.com
S12: Dougsim - commons.wikimedia.org
S14: Pixabay.com
S16: Matthias Schüssler - flickr.com
S18: Helgi Halldórsson - flickr.com
S20: US Postage - commons.wikimedia.org
S22: Thomas - flickr.com