Helga Dögg Sverrisdóttir
Alþingi Íslendinga var stofnað á Þingvöllum 930 og þar voru haldin þing til ársins 1798. Alþingi er eitt af elstu þingum í heimi. Það var haldið á Þingvöllum til ársins 1798. Hér voru ágreiningsmál leyst og ný lög ákveðin.
5Frá því að Alþingi var flutt til Reykjavíkur hafa stórhátíðir verið á staðnum, t.d. stofnun lýðveldisins 1944.
7Þingvellir hafa sérstaka þýðingu fyrir Íslendinga. Þingvellir er í dag friðlýstur helgistaður. Þingvellir fóru á heimsminjaskrá UNESCO árið 2004.
9Saga staðarins og náttúra dregur marga ferðamenn að sér. Staðurinn er í svokölluðum ,,Gullna hring.” Jafnt sumar, vetur, vor og haust heimsækja ferðamenn Þingvelli. Hver árstíð hefur sinn sjarma sem breytir landslaginu.
11Hægt er að snorkla í ánni Silfru. Grunnvatnið í ánni er afar tært og blátt því það er bráðið vatn frá jökli og hefur verið í jörðinni í mörg ár. Í Silfru getur maður komið við to flekaskil á sama tíma.
13Þingvallasvæðið er á mörkum Norður-Ameríska- og Evrasíðuflekanum og er meðfram eldgosabelti sem liggur þvert yfir Ísland. Vorið 1798 gekk 10 daga jarðskjálftahrina yfir Þingvelli.
15Þingvallavatn er stærsta náttúrulega stöðuvatn landsins um 83,7 km² að stærð. Það er líka mjög djúpt, 114 m. Birkiskógur er áberandi í landi þjóðgarðsins.
17Öxará er bergvatnsá sem rennur í Öxarárfossi sem er fallegur. Þaðan fer fossinn í Þingvallavatn.
19Foto/ Myndir/ Asseq/ Valokuva/ Guvvieh/ Nuotraukos/ Photo:
S1: Johanna Martens - pixabay.com
S4: Commons.wikimedia.org
S6: Andreas Tille - commons.wikimedia.org
S8: Mike - flickr.com
S10: Joseph Bautista - flickr.com
S12: Ivan - Atlantbib.org
S14+16: Axel Kristinsson - flickr.com
S18: William Warby - flickr.com
S20: Royal Danish Post - 1930 - commons.wikimedia.org