![](https://atlantbib.org/sites/default/files/logo_0.png)
Takaisin hakuun
Ellie Stache & Jennifer Anderlöf - Frösakullsskolan
Käännetty: Svanhvít HreinsdóttirH&M var stofnað af Erling Persson. Fyrsta búðin opnaði í Västerås árið 1947 og þá hét búðin “Hennes”.
H&M var stofnað af Erling Persson. Fyrsta búðin opnaði í Västerås árið 1947 og þá hét búðin “Hennes”.
Strax árið 1954 hafði “Hennes” dreift úr sér. Sama ár var “Hennes með í stærsta dagblaðinu.

Það eru 4745 búðir í 69 löndum. Fyrsta búðin fyrir utan Svíþjóð opnaði í Noregi 1964.
Árið 1968 var líka byrjað að selja herrafatnað. Þá breyttu þeir nafninu í Hennes & Mauritz, alltaf kallað H&M. Erling Persson gerði H&M logóið.

Stefan Persson (forstjóri) er sonur Erling Persson. Þegar Erling dró sig í hlé tók Stefan við stöðunni sem framkvæmdastjóri árið 1982. Stefan Persson var næst ríkastur í Svíþjóð árið 2016.

Á árunum 1988-2000 rak H&M líka lágvöruverslunina Galne Gunnar. Mælt í fjölda verslana árið 2017 er H&M stærsta verslanakeðja með föt í heiminum. Þýskaland er stærsta markaðssvæðið með u.þ.b. 400 verslanir.

Í H&M getur maður ekki bara keypt föt, maður getur líka keypt snyrtivörur og heimilisvöru t.d. fyrir baðherbergi, svefnherbergi, stofu og fleira.

H&M vinnur með mörgum þekktum hönnuðum og poppstjörnum. Meðal annars gerði Karl Lagerfeld fatalínu fyrir H&M. Madonna hefur líka verið í samstarfi við H&M.