Tilbake til søk
isHelga Dögg Sverrisdóttir
Eiríkur rauði fæddist í Jæren í Noregi um 950. Hann var norskur víkingahöfðingi. Sagan segir að hann hafi orðið friðlaus og flúði til Íslands þar sem hann settist að.
5
Menn hafa tilgátu um að bær Eiríks rauða sé í Haukadal á Vesturlandi Íslandi. Það er byggt á rannsóknum fornleifafræðinga á rústum sem grafnar voru upp.
7
Talið er að heimili Eiríks hafi litið svona út. Húsið er um 50 m² að flatarmáli og 4 m breitt. Veggirnir og þak hússins eru tyrfðir.
9
Kona Eiríks rauða hét Þjóðhildur og var ættuð úr Haukadal. Fósturpabbi hennar gaf þeim smá land til að byggja á og er talið að þau hafi byggt Eiríksstaði. Talið er að börnin þeirra tvö hafi fæðst í Haukadal.
11
Í húsinu má sjá þurrkaðan fisk og búnað sem talið er að þau hjón hafi notað á meðan þau bjuggu í húsinu.
13
Hér má sjá vistarverur eins og þær voru. Eldur í miðju rými og gærur af dýrum til að halda á sér hita.
15
Eiríkur rauði lenti oft í útistöðum við nágranna sína og drap tvo af þeim. Hann varð friðlaus að nýju og flúði. Hann fann nýtt land og nefndi það Grænland. Han dó þar um 1003.
21