IS
Play audiofileis
Gásir- forn verslunarstaður
IS
2
Gásir- forn verslunarstaður

Helga Dögg Sverrisdóttir

3
4

Gásir er verslunarstaður frá miðöldum. Gásir eru tilnefndar á heimsminjaskrá UNESCO. Staðurinn er 11 km norður af Akureyri, við ströndina í Eyjafriði á norðanverðu Íslandi.

Play audiofile 5
6

Nokkrum sinnum hefur fornleifauppgröftur verið á Gásum. Hvergi á Íslandi eru varðveittar jafn miklar mannvistarleifar frá miðöldum.

Play audiofile 7
8

Staðurinn er oft nefndur í handritum frá 13. og 14. öld. Komið var sjóleiðis að Gásum. Talið er að siglt hafi verið fram eftir 15. öld að staðnum.

Play audiofile 9
10

Þriðju helgina í júlí eru Miðaldadagar haldnir á Gásum. Þá kemur fólk saman og lifir eins og gert var á miðöldum.

Play audiofile 11
12

Á Miðaldardögum getur maður séð hvernig handverk var unnið og matur búinn til. Fólk sýnir hvernig lífið var á miðöldum og hvernig verslunarstaðurinn var.

Play audiofile 13
14

Á Miðaldardögum er sett upp leikrit til að sýna almenningi hvernig menn börðust um varning sem barst að Gásum.

Play audiofile 15
16

Skreið er þurrkaður fiskur, oftast þorskur. Þurrkun er gömul aðferð, til að auka geymsluþol fisks, sem einkum er notuð á Íslandi. Á miðöldum var mikið borðað af honum.

Play audiofile 17
18

Allir hjálpuðust að við vinnu og þegar handverk var búið til. Börn og fullorðnir höfðu hlutverk.

Play audiofile 19
20

Maður óf á vefstól sem búinn var til úr spýtum. Í vefnaðinn var notuð ull frá kindum.

Play audiofile 21
22

Hestahár voru líka notuð í vefnað. Hárin voru í mörgum litum og eru grófari en kindaullin.

Play audiofile 23
24

Fýsibelgur var notaður til að halda glóðinni heitri þannig að hægt væri að hamra járnið meðan það er heitt.

Play audiofile 25
26

Hefur þú heimsótt Miðaldardaga?

Play audiofile 27
Gásir- forn verslunarstaður

Foto/ Myndir/ Asseq/ Valokuva/ Guvvieh/ Nuotraukos/ Photo:
S1+10+14+26: Minjasafnid.is
S4: Joaoleitao - commons.wikimedia.org
S6: Akureyri.is
S8+16+18+20+22+24: Helga Dögg Sverrisdóttir

minjasafnid.is/is/gasir

 
Forrige side Næste side
X